Það er einkar ánægjulegt að sjá hvernig samfélagið er að bregðast við gjaldheimtumönnunum sem ætla að taka sér vald til að rukka ferðamenn, í eigin þágu, innlenda sem erlenda, sem vilja njóta íslenskrar náttúru.
Á Alþingi í dag beindi ég spurningu til Bjarna Benediktssonar, fjarmálaráðherra, um gjaldtökuna við Geysi. Fann ég að því að viðbrögð stjórnvalda við ólöglegri galdtöku á Geysissvæðinu væru linkuleg.
Það er ekki ýkja langt síðan farið var að rukka ferðamenn við Kerið og síðan við Geysi. Það er hins vegar svo langt um liðið að stjórnvöld hefðu átt að vera búin að taka í taumana og stöðva gjaldtökuna því hún er ólögleg.
Birtist í DV 28.03.14.. Ég vissi aldrei alveg hvort það var satt eða logið, sem sagt var um Mobutu Sese Seko einræðisherra í Kongó, síðar Zaire, á árunum 1965 til 1997, að hann hefði haft ráð undir rifi hverju til að hygla stuðningsmönnum sínum og ættmennum.. Ef ættmenni gerðust fjárvana hafi einfaldlega verið komið upp nýju tollhliði á alþjóðaflugvellinum í höfðuborginni Kinshasa.
Þetta er ljósrit af aðgöngumiða að Geysi í Haukadal. Einstaklingar á svæðinu hafa tekið sér það bessaleyfi að rukka fólk sem kemur til að skoða þessa einstöku náttúruperlu, án þess þó að hafa til þess nokkurt leyfi.