Fara í efni

UM FLUGVÉL OG FJÁRSVELTI

Sæll Ögmundur.
Finnst þér ekki grátlegt til þess að vita, að hinn fullkomna flugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, skyldi ekki hafa nýst til leitar að hinum sænska ferðamanni í síðustu viku þar sem hún var í útleigu í Miðjarðarhafinu? Ég vona að það verði ekki fleiri atvik þar sem hægt verður að spyrja sig hvort mögulega hefði verið hægt að koma nauðstöddum til aðstoðar ef tæki Landhelgisgæslunnar hefðu ekki verið í tekjuöflun á fjarlægum slóðum vegna fjársveltis hér heima fyrir.
Erlingur A. Jónsson