AÐ KAUPA “ÞVOTTAVÉL
11.11.2019
Ef þvætta viltu þannig fé,
þýfi miklu sanka.
Eftirlitinu komdu á kné,
kauptu ríkisbanka.
Ástin varð að báli
Margir varast makaleit,
minnki blessun presta.
Ástin í kirkju ofsaheit,
eldurinn náði til gesta.
„Mældu útþensluhraða alheimsins“
Útþensla er á Alþingi mest,
alls konar sjálftöku vilja.
Þjóðina hundsa þykir best,
þvætti og spillingu dylja.
„Andleg kolefnisjöfnun“
Svo varasamur er vegurinn háli,
vindur í sterkum rokum.
Ef ætlar að bölva í bundnu máli,
biddu þá vel að lokum.
Kári