AÐ LABBA REST TIL STUÐNINGS NATÓ
04.04.2008
Já, það er merkilegt hvað fólk getur þroskast illa með aldrinum eins og fram kemur í bréfi Sunnu Söru um gamla Keflavíkur-göngugarpinn okkar hana Ingibjörgu Sólrúnu utanríkisráðherra. En hvernig væri nú að hún gengi síðasta spölinn frá NATÓ fundinum í Búkarest - þeas. frá einkaþotunni á Reykjavíkurflugvelli og upp í ráðuneyti - svona rétt til að minna landsmenn á mikilvægi NATÓ og framgöngu þess, m.a. í Írak og Afganistan nú um stundir.
Sigurfljóð Hermannsdóttir