AÐ ÞEKKJA EKKI SINN VITJUNARTÍMA
16.01.2010
Er ekki komin tími til að láta af þessum einstrengingshætti og viðurkenna að sök okkar Íslendinga felst í því að hafa látið líðast það ábyrgðarleysi sem stjórnvöld hafa viðhaft árum og áratugum saman. Fyrir það á þjóðin skilið ærlega flengingu. Ég sé enga skynsemi í hegðun þinni varðandi Icesave og finnst sorglegt að engin skuli leggja þér lið út úr þeim ógöngum. Það er dapurlegt þegar stjórnmálamenn skynja ekki sinn vitjunartíma. Blessaður reyndu að stilla þig og snúa þér að nýjum verkefnum meðan heilsan leyfir.
Kristjón Sigurðsson