APRÍLGABB SJÁLFSTÆÐIS-FLOKKSINS
02.04.2009
Alvitlausasta aprílgabbið var hjá Rúv., þegar Bjarni Ben. nýkjörinn formaður Sjálfstæðisflokksins lofaði landsmönnum bót og betrun fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins. Þessu trúir ekki nokkur maður, og allra síst flokksmenn hans, því þeir standa í þeirri trú að ekkert hafi verið athugavert við stefnu og störf þeirra á undanförnum árum.
Kveðja,
Sigurjón