ÁSKORUN TIL FJÁRMÁLA-RÁÐHERRA
Hæstvirtur fjármálaráðherra þarf nauðsynlega að setja í gang endurskoðun á innflutningsgjöldum af ökutækjum sem forveri hans opnaði upp á gátt með því að lækka gjöld úr 45% í 15% af stórum dýrum amerískum trukkum sem flæddu inn í landið. Skipta þarf upp í hagkvæm eyðslugrönn ökutæki og lækka gjöld af þeim og hækka aftur á hinum til að koma í veg fyrir austur á gjaldeyri í slík ökutæki. Það er staðreynd að flestir luxusbílar hér á landi eru í eigu einkafyrirtækja smárra og stórra og koma beinum rekstri ekkert við heldur ætlaðir útvöldum innan eigendahópsins. Rétt er að fara Dönsku leiðina þar sem allir fyrirtækjabílar eru á VSK númerum leyfðir fyrir 1 farþega en mega vera hvaða teguns sem er en einkanotkun er bönnuð.Þeir eru með 200% tolla af fólksbílum og á meðan Skoda var hér á rétt um 2 milljónir fyrir hrunið kostaði nákvæmlega eins bíll rúmar 4 milljónir í Danmörku og stendur alls ekki til þar á bæ að gefa eftir. Íslendingar eiga nærri heimsmet í bílaeign pr.heimili eða 2.7 ökutæki og því er gatnakerfi Höfuðborgarsvæðisins sprungið fyrir löngu síðan. Þá þarf að endurrita reglugerð um merkingar á Ríkisbifreiðum og þær allar merktar á framhurðum með áberandi hætti utan ráðherrabifreiðar og bifreiðar Forseta Íslands. Forveri Steingríms J rýmkaði þessar reglur ótæpilega vegna kvartanna flokksgæðinga sem notuðu bifreiðar viðkomandi stofnanna sem sínar eigin og því óþægilegt í laxveiðitúrum sem dæmi.
Þór Gunnlaugsson