Grænmetisætur og skattamál
16.11.2004
Vinstri grænir gefa sig út fyrir að vera náttúruverndarsinnar, en hversu langt nær sú hugsun? Hyggst flokkurinn gera eitthvað til að bæta hag annarra náttúruverndarsinna hér á landi, grænmetisætna, til dæmis með því að fá niðurfelldan munaðarvöruskatt á soyavörum?
Erna
Þakka þér bréfið Erna. Við viljum vera trú hugsjónum náttúruverndarsinna. Varðandi skattaniðurfellingu á þeim vörum sem þú nefnir þá er sjálfsagt að skoða það. Ég skal játa að þessu er ég ekki nægilega kunnugur en mun bæta úr því og er opinn fyrir ábendingum. Hins vegar fylgjum við þeirri almennu stefnu að leysa ekki málin með sértækri niðurfellingu á sköttum.
Kveðja,
Ögmundur