HÆRRA PLAN, HÆRRA PLAN...
"Slík leikflétta myndi því litlu breyta og vandséð að hún gæti gefið fólkinu í landinu nýja von." Þannig endar Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi afsettur formaður Sjálfstæðisflokksins, maðurinn sem hóf einkavæðingaferli Sjálfstæðisflokksins með sölu, sumir sögðu gjöf, Síldarverksmiðjanna til þóknanlegra og afkomenda þeirra, maðurinn sem festi í sesssi framsalið í kvótakerfi Halldórs Ásgrímssonar. Svona endar hann enn einn pistilinn hjá skoðanabræðrum sínum rit-og fjölmiðlastjóranum, sem áður og fyrr var aðsoðarmaður sendiherrans við Skúlagötu.
Enn á ný þessi hugmynd Þorsteins, Ólafs og Ara: Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingin verða að koma þjóðinni í
sameignarfélagi inn í Evrópsambandið með því að mynda ríkisstjórn. Þorsteinn Pálsson er búinn að skrifa 69 svona greinar, sem virðast sumar hverjar sveiflast eftir því fyrst og fremst, hvernig þeim tekst til sem felldi Þorstein úr formannsstóli, þeim hinum sama og nú stýrir morgunblaði fyrrum vina sendiherrans.
Umræðan má ekki verða svona prívat og þröng og snúast um eitthvað sem gerðist á fundi fyrir hálfu
tuttugasta ári. Hærra plan, hærra plan, má ég biðja um dýpri hugsun, og hreinskiptari framsetningu.
Kveðja
Jóna Guðrún