HIÐ RÖKRÉTTA
Sæll Ögmundur.
Í tilefni af atkvæðagreiðslu hjá SÞ. um sjálfstætt og fullvalda ríki Palestínumanna eður ei, þá langar mig til að endursegja brilljant komment um málið, sem ég fann einhvers staðar á flakki mínu um netheima. Í stuttu máli gengur kommentið út á spurninguna um hvaða rétt vestrænar þjóðir höfðu til að gefa síonistum í lok WWII, land Palestínumanna? Það voru ekki Palestínumenn sem myrtu Gyðinga á hryllilegan hátt í WWII, það voru þýskir Nasistar sem frömdu þau myrkraverk og því er það stóra spurningin hvers vegna þýskir Nasistar voru ekki látnir gefa Gyðingum land af sínu landi? Það hefði verið hið eina rökrétta í stað þess að refsa Palestínumönnum fyrir syndir sem þeir frömdu ekki, heldur þýskir Nasistar. Af hverju er alltaf tekið land af hinum saklausu, en ekki hinum seku? Það er hin stóra siðferðislega spurning. sem allar sameinuðu þjóðirnar ættu að spyrja sig. Verðum við kannski girt af á okkar eigin landi?
Jón Jón Jónsson