HLUTAÐEIGANDI SEGI AF SÉR!
Heill og sæll Ögmundur og allir góðir hálsar: Furðulegt mál er vægast sagt komið upp. Að láta sér detta í hug að semja við eitthvað dularfullt fyrirtæki sem byggir á hernaðardýrkun er ótrúleg heimska og bíræfni. Auðvitað hlaupa ýmsir til of vilja endilega taka þetta hernaðarfyrirtæki E.C.A. Program fagnandi. Nú er heimskan sögð vera ólæknandi en það er önnur saga. Þetta einkennilega fyrirtæki birtir myndir frá Suðurnesjum þar með einnig af Keflavíkurflugvelli á heimasíðunni: http://www.eca-program.com
Við eigum sem Íslendingar, mannréttinda og lýðræðissinnar, að krefjast þess að þeir aðilar sem þarna eiga hlut að máli segi af sér þegar í stað öllum opinberum trúnaðarstörfum! Það gildir bæði um þá þingmenn sem málið varðar sem og þá embættismenn og aðra sem hafa á hendi opinbera stjórnsýslu. Rökstuðningur: Íslendingar eru vopnlaus þjóð. Starfsemi sem bæði er óljós og er ekki undir neinni yfirstjórn ríkis né opinberra aðila getur gengið kaupum og sölum eftir því sem henta kann. Þess vegna gæti fyrirtækið verið í tengslum við glæpsamlega starfsemi t.d. á borð við Mafíuna og aðra undirheimastarfsemi, því gæti þess vegna verið stýrt til hagsbóta þeim sem vilja grafa undan lýðræði og mannréttindum. Augljóst er að hér gæti orðið gróðrarstía mútustarfsemi eins og hún verst getur orðið enda er margsannað að framleiðsla og sala hernaðargagna hefur komið við sögu mútumála og grófra mannréttindabrota. Rekstur þessa fyrirtækis gæti m.a. flækt Íslendinga inn í mjög vafasamar milliríkjadeilur. Hvað ef hér væru t.d. þjálfaðir málaliðar sem seinna væru sendir til byltingastarfsemi í ríkjum Ameríku, Afríku eða Asíu, kannski jafnvel Evrópu og Ástralíu?
Að veita þessu fyrirtæki starfsleyfi hér gæti hugsanlega leitt til þess að Ísland bryti sáttmálann um Nató og Sameinuðu þjóðirnar en þar eru mjög skýrar reglur um hvers konar hernaðarstarfsemi má vera í hverju aðildarlandi. Augljóst er, að starfsemi þessa fyrirtækis gæti gengið þvert á hagsmuni Nató. Og ekki síst: Þetta fyrirtæki með skuggaleg markmið gæti leitt til þess að íslenskir sporgöngumenn þess kunna að brjóta gegn ákvæðum íslensku hegningarlaganna um landráð.
Undirritaður leggur eindregið til að Utanríkismálanefnd Alþingis verði þegar kölluð saman og þeim aðilum stefnt á fund hennar til að upplýsa hvað sé í gangi. Umboð til að semja við fyrirtæki hvers starfsemi kann að vera andstæð hagsmunum friðsamrar vopnlausar þjóð er ekki fyrir hendi! Hér er stórmál á ferðinni og augljóst að peningapúkarnir eru að koma úr skotum sínum og ætla sér stóra hluti með þessum ísmeygilega fagurgala um betri tíð. Af ávöxtunum skulum við þekkja þá!
Guðjón Jensson,
Mosfellsbæ