KÁTT ER Í BANKARANNINUM
01.03.2007
Að gefnu tilefni datt mér í hug að breyta frægri vísu eftir Stefán Jónsson.
Þá lítur hún svona út:
Bjarni karlinn kaupir og selur.
Kátt er í banka-ranninum.
Þar eru á ferli úlfur og melur
í einum og sama manninum.
Kveðja,
Kristján Hreinsson, skáld
p.s.
Fyrir þá sem ekki vita:
(Melur er hér í merkingunni eyðsluseggur - bölvaður melurinn).