MÁLEFNI KEFLAVÍKURFLUGVALLAR EIGA AÐ VERA Í BRENNIDEPLI
05.09.2006
Sæll Ég heiti Haraldur Magnússon. Víst eru Kárahnjúkar stór mál en af hverju heyrist lítið frá ykkur um mál Keflavíkurflugvallar? Það er mál sem þarf að tala meira um svo ekki fari illa.
Haraldur Magnússon
Sæll og þakka þér fyrir bréfið Haraldur. Ég er sammála þér að miklu máli skiptir hvernig til tekst um þróun Keflavíkurflugvallar og nýtingu mannvirkja þar. Löngu var fyrirséð að Bandaríkjamenn færu héðan af landi brott með sitt lið og flutti VG ítrekað þingmál um málefnið. Bæjaryfirvöld í Reykjanesbæ, ríkisvald, verkalýðshreyfing og fleiri aðilar hafa komið að umræðu um þetta málefni. Þar eiga menn okkar stuðning óskiptan. Sjá þingmál HÉR.
Kveðja,
Ögmundur