NIÐURSKURÐUR Í MENNTUN: ÁVÍSUN Á STÉTTA-SKIPTINGU
Sæll Ögmundur.
Eg hef stutt vg, og þig í mörg ár en ég vil impra á einu atriði varðandi þessi lög um framhaldsskólana. Við viljum bera okkur saman við Norðurlöndin og standa jafnfætis þeim en á sama tíma og margir Íslendingar eru atvinnulausir, búa við skert laun og vinnuframlag eða eru flúnir land svo þeir geti greitt skuldir sínar. Þá eru margir að reyna að byggja sig upp, klára óklárað nám eða bæta við sig þekkingu á meðan allt er í lægð. Forseti Finnlands var spurður að því um daginn hvað væri leyndarmálið að baki finnskri velmegun, svarið var einfallt: Menntun, menntun og meiri menntun.
Því finnst mér RANGT og ég styð það ekki að draga saman seglin í menntun og koma á stéttaskiptingu, þar sem þeir sem hafa meira á milli handanna hafi tök á að mennta sig. I velferðasamfélögum Norðurlandanna t.a.m Finnlandi fá nemendur greitt fyrir að vera í skóla. Við erum að stíga skref aftur á við þegar við eigum að vera byggja okkur upp, ég tel engan sparnað í því að koma á svona stéttaskiptingu og þetta er ekki í anda þess VG sem ég kaus.
Móses Helgi Halldórsson