PÓLITÍSK REKSTRARSTJÓRN YFIR LEIFSSTÖÐ?
Birtist í Fréttablaðinu 26.07.07.
Þegar Flugstöð Leifs Eiríkssonar var gerð að hlutafélagi var ég í hópi þeirra sem andæfði því; taldi að helsta flugstöð Íslendinga ætti að vera í eigu þjóðarinnar og á forræði hennar. Hún ætti að lúta eftirliti og aðhaldi frá Alþingi og heyra undir þau lög sem um opinberan rekstur gilda. Vildu menn aðkomu einkaaðila að rekstrinum væri nóg svigrúm til slíks innan þeirrar umgjarðar sem flughöfnin er. Mitt sjónarmið varð undir. Flugstöð Leifs Eiríkssonar var gerð að hlutafélagi og var ein röksemdin sú að eðlilegt væri að losa hana úr tengslum við pólitíkina. Upp væri runnin stund hinna faglegu sjónarmiða, eins og það var kallað, enda ætti rekstrarstjórn flugstöðvarinnar einvörðungu að huga að rekstrarlegum þáttum. Það væri hins vegar löggjafans að setja henni almennar reglur og ramma. Nú gerist það fyrir nokkrum dögum að boðað er til fundar í stjórn hlutafélagsins að undirlagi nýs utanríkisráðherra, Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur. Var þá skipt út í stjórninni og skipaðir tveir fyrrum þingmenn Samfylkingarinnar. Um þetta var utanríkisráðherrann spurður í Kastljósi Sjónvarpsins. Þetta er fullkomlega "eðlileg" ráðstöfun svaraði
höf. er þingflokksformaður VG