RÆNDUR LÍFINU – EN ÆRUNNI EKKI
Dauðsjúkur að koma heim eftir rúm tuttugu ár í fangelsi.
Það var mikil lífsreynsla að koma upp í Golanhæðirnar í dag. Ekki aðeins vegna þess að þar er landslag fagurt heldur fyrst og fremst vegna þeirrar lífsreynslu, sem við ferðafélagarnir, Eiríkur Jónsson, formaður KÍ, Borgþór Kjærnested, skipuleggjandi ferðarinnar hér í Palestínu, Ísrael og nú Sýrlandi einnig, urðum fyrir. Þetta var nefnilega dagurinnn sem
Því má segja með nokkrum sanni að þessi 47 ára gamli Sýrlendingur hafi verið sviptur lífinu í tvennum skilningi, þeim hluta ævinnar, sem menn eru þrekmestir og síðan möguleikanum að fá læknisaðstoð í tæka tíð – annað hvort til að læknast af sjúkdómi sínum eða skjóta banvænum áhrifum hans á frest.
En ærunni var
Annars var það einkum sýrlenski fáninn sem var uppi enda eru Golanhæðirnar sýrlenskt land sem hernumið var í Sex daga stríðinu árið 1967. Fyrir þann tíma voru 139 þorp á þessu svæði og íbúafjöldinn 130 þúsund. Með þvinguðum fólksflutningum var fækkað niður í 7 þúsund manns! Þeim hefur síðan fjölgað um 10 þúsund og eru nú um 17 þúsund.
Það er átakanlegt að heyra fólk á þessum slóðum segja frá hlutskipti sínu. Við komum inn á heimili tveggja systkina, fólks sem gæti verið um sextugt. Það hafði verið aðskilið frá öðrum fjölskyldumeðlimum í rúma þrjá áratugi og var það ekki fyrr en nú nýlega að fjölskyldan hafði fengið leyfi til að hittast í Amman í Jórdaníu!
Í þorpinu var - uppi á hæsta tindi - ísraelsk herstöð. Og fyrir neðan hana voru gaddavírsgirðingar og svæðið þakið jarðsprengjum. Jarðsprengjusvæðin voru merkt en ekki svo rækilega að ólæs smábörn höfðu rambað inn á þessi belti og látið þar lífið, nú síðast fimm ára drengur.
Við þorpið liggja landamærin að Sýrlandi, og eins og við mátti búast eru þau rækilega girt með öllu tilheyrandi, rafmagnsgaddavír, jarðsprengjum og úr varðturnunum eru árvökul augu varðmanna, sem stöðugt hafa fingurinn á byssugikknum, ætli sér einhver að freista þess að komast yfir landamærin. Margir höfðu reynt en enginn komist yfir. Allir höfðu verið drepnir á flóttanum.
Nánast allar fjölskyldur á þessum slóðum og í Palestínu hafa misst ættingja sína í stríði og ofbeldisaðgerðum Ísraela. Þetta gildir ekki síður um fangelsanir. Nánast allar fjölskyldur þekkja ísraelsk fangelsi beint eða óbeint. Með okkur í för var fólk úr sunnanverðri Palestínu. Við höfðum staðið í þeirri trú að fólkið væri að heimsækja ættingja sína á Golanhæðum. Og vissulega heilsaðist fólkið eins og nánir ættingjar. Á daginn kom hins vegar að það var ekkert skylt. Það hafði hins vegar kynnst í ísraelskum fangelsum. Greinilega myndast þar tengsl sem eru engu ótraustari en nánustu fjölskyldutengsl. Við sátum í herbergi sem var þéttskipað einstaklingum sem bundið var slíkum traustum samstöðu- og vinatengslum; allir höfðu setið í fangelsi í lengri eða skemmri tíma.
Samkennd þessa fólks er geysilega sterk, ekki aðeins þeirra sem setið hafa í fangelsi.
Þetta er fólk sem ekki verður auðveldlega brotið niður. Um það sannfærðumst við rækilega í dag.
.