SIGURSTRANGLEGUR FUNDUR !
Til hamingju með landsfundinn. Hann var sigurstranglegur þó sigrar séu langt frá því að vera í hendi. Ég var á setningu landsfundarins og fylgdist með honum svo í fjölmiðlum en áttaði mig best á því hvað þetta var sigurstranglegur fundur þegar ég sá þessi blogg í dag en úr þeim eru meðfylgjandi dæmi:
G.Tómas Gunnarsson:
"Æjatolla" Steingrímur og gullið í Silfrinu
Ég segi bara púff, og ætla rétt að vona að Íslendingar hafi í stórum hópum snúið baki við VG í dag.
Guðmundur Steingrímsson
Netlögregla?Steingrímur J. og Vinstri grænir vilja setja á stofn netlögregluembætti.
Þetta er líklega ein óhuggulegasta hugmynd sem ég hef heyrt í stjórnmálum á Íslandi
Steingrímur Sævar Ólafsson
Steingrímur Robocop SigfússonMenn eru ekki alveg vissir um hvort hlátur eða grátur sé betur við hæfi eftir yfirlýsingar
Björn Ingi Hrafnsson:
Samkvæmt skoðanakönnunum
Ingvi Hrafn Jónsson
Grímulaust ofstæki gamla kommúnistaflokksins öllum ljóst
Þarf frekari vitna við?
Sigurður Bjarnason