STEFNUBREYTING?
19.10.2018
Nú eru Bandaríkjamenn nýbúnir að vera hér á Íslandi með hundruð
manna við heræfingar. Er það ekki rétt munað hjá mér, Ögmundur minn, að þegar
þú sast í vinstri stjórninni þá voru aldrei neinar heræfingar? Sú stjórn sat þó
í meira en fjögur ár ef allt er talið. Hefur orðið stefnubreyting hjá VG undir
forystu Katrínar Jakobsdóttur?
Börkur Barkar