Stórsjór í tebolla?
Sæll Ögmundur
Hvernig vilt þú að ráðherralið Framsóknarflokksins verði eftir 15. september? Finnst þér ekki skipta máli hvernig ráðherrabekkurinn verður skipaður?
Kveðja,
Guðbjörn
Sæll Guðbjörn og þakka þér bréfið með fyrirspurn þinni. Auðvitað skipta einstaklingar máli. Það á líka við um framsóknarmenn eins ótrúlegt og það kann að hljóma. En það er vissulega blæbrigðamunur á einstaklingum sem verma ráðherrastólana hjá Framsókn og líka á hinum sem sitja úti í þingsalnum og langar nú upp á bekkinn. En þrátt fyrir muninn skulum við ekki gleyma því að allt er þetta nú samt fólkið sem samþykkti Kárahnjúkana, gagnagrunninn, fjölmiðlafrumvarpið, öryrkjalögin, einkavæðingu og gjafaútsölu á ríkiseignum og niðurskurð á Landspítalanum og öðrum sjúkrastofnunum landsins. Þannig að þegar allt kemur til alls erum við fyrst og síðast að tala um persónupólitík þegar slagurinn í Framsókn er annars vegar, eða heyrist nokurn tímann minnst á málefni? Í kringum persónupotið er vissulega oft talsverður gusugangur. En menn mega ekki rugla honum saman við pólitískan ólgusjó. Nema menn vilji tala um stórsjó í tebolla Framsóknar?
Kveðja,
Ögmundur