SVEINN RÚNAR VERÐ-LAUNAÐUR AÐ VERÐLEIKUM
07.02.2016
Ég er sammála svari þínu um Svein Rúnar Hauksson þar sem þú fagnar því að hann skuli hafa verið heiðraður í Palestínu með því að gera hann að heiðursborgara þar. Sveinn Rúnar á mikið lof skilið fyrir framlag sitt til mannréttindabaráttu. Enda þótt honum hafi án efa oft verið heitt í hamsi hefur honum tekist að vera hófsamur í málflutningi og fyrir bragðið sannfærandi.
Heimurinn væri betri ef við ættum fleiri menn eins og Svein Rúnar Hauksson.
Sunna Sara