ÞAKKIR
08.04.2016
Sæll Ögmundur
Mig langar til að þakka þér fyrir mjög skelegga og vel flutta ræðu þína sem þú fluttir blaðalaust af mjög miklum krafti og sannfæringu! Sjálfur sit eg heima, treysti mér ekki í fjölmenn mótmæli á Austurvelli eftir erfiðan uppskurð vegna krabbameins fyrir nokkrum vikum. En mitt fólk er núna á Austurvelli að mótmæla!
Bestu baráttukveðjur!
Guðjón Jensson, Mosfellsbæ