ÞARF AÐ BYRJA UPP Á NÝTT
07.02.2009
Ég óska þér Ögmundur og nýrri ríkisstjórn velfarnaðar í starfi. Nú er búið að skipta út fólki á ýmsum stöðum í þjóðfélaginu og er ekkert nema gott um það að segja. Við þurfum að byrja upp á nýtt ekkert er eins og það var fyrir nokkrum mánuðum síðan. Það sem við hélldum að væri öruggt er er fallvalt eða horfið í dag hvort sem það er atvinna fólks, peningar, eða fyrirtæki. Forgangsvekefni þessarar ríkisstjórnar ætti að mínum dómi að vera að efla atvinnulífið í landinu.Við Íslendingar erum ekki vanir miklu atvinnuleysi en nú er útlitið dökkt.Við þurfum því á ríkisstjórn að halda sem boðar bjartsýni og hvetur fólkið í landinu til dáða.
Jóhannes T. Sigursveinsson