TOSSATAL
Í dag hafa þeir átt viðræður sín í milli í fjölmiðlum Már Guðmundsson, seðlabankastjóri og Þórólfur Matthíasson, prófessor. Þeir eru sammaála um að öllu máli skipti að semja um Icesave strax og að drátturinn á samningum hafi kostað okkur gríðarlega fjármuni. Þetta er náttúrlega ekkert nýtt, nákvæmlega sömu ræðurnar og yfirlýsingarnar og í fyrra nema nú eru þeir kallaðir tossar sem voru og eru á öðru máli. Á daginn hefur hins vegar komið að tossarnir eru þeir sjálfir, Már og Þórólfur. Þeir reyndust hafa rangt fyrir sér alla leið. Eina sem ég bið nú um er að þeir sýni okkur með dæmum og með tölulegum útreikningum hvað Icesavedrátturinn hefur kostað þjóðarbúið. Staðreyndin er náttúrlega sú að Icesave I og Icesave II hefði þurrkað prófessor Þórólf og félaga hans út af fjárlögum fyrir löngu. Eftir á að hyggja hefði kannski verið rétt að þegja og samþykkja.
Jóel A.