VANHUGSAÐ
23.03.2016
Í sjónvarpsfréttum sjáum við nú vopnaða lögreglumenn spranga um í Leifsstöð. Hver er tilgangurinn? Verja okkur, fæla hryðjuverkamenn frá? Ég spyr hvort þetta kunni að hafa alveg gagnstæð áhrif. Ég hef grun um að þetta sé ekki hugsað í þaula. Heldur séum við bara að gera eins og hin(ir).
Mér finnst þetta bera það með sér að vera vanhugsað.
Grímur