Grýlusögur
Svo ógurlegur var Hundtyrkinn í Eyjum forðum að hann bar með sér flösku með mannsblóði blönduðu byssupúðri til að auka sér grimmd. Þá sögu sögðu fréttamenn 17.aldar, prestar og annálaskrifarar sumir. Ekki þótti verra að lýsa skrattakollum þessum hressilega! Grýlusögur fjalla um mannætu. Grýla er þó ekki persóna í öllum grýlusögum.
Grýlasagan um þessi jól verður um Sadam af Írak (les:Satan) og púkana,sem honum
þjónuðu. Í upphafi voru sögurnar sagðar af útlægum löndum hans við skrifborð bresku og bandarísku leyniþjónustunnar. Aðalhöfundurinn fékk u.þb.100 milljónir dala fyrir framlag sitt, en hann skrifaði um kjarnorkuvopn,sýklavopn,eiturvopn og fjöldadráp Satans á löndum sínum. Sá maður er nú "horfinn" og yfirmennirnir hjá CIA reknir, þeir sem réðu hann, enda voru skrifin lygabull !
Umgerð grýlusögunnar 2004 eru réttarhöld yfir sonum Satans, þ.e. þjónum
Sadam Hussein af Írak, sem hefjast eiga nú í aðventunni. Sagan á að vera
stofninn í jólafréttunum þetta árið í Bandaríkjunum í Írak og á Íslandi.
Bandaríska herstjórnin í Írak hefur haft marga í söguritun í á annað ár.
(Ekki hefur þó tekist að kasta tölu á limlesta og látna Íraka vegna stríðsins.)
Stríð er í Írak og ekkert réttarríki er þar til orðið því engin eru innlend
lögin. Tilskipanir innrásarhersins í Írak eru þar "ígildi laga". Sérlegar
tilskipanir þurfti að semja fyrir væntanleg réttarhöld og ráða "dómara"
til starfa, svo jólasýningin gæti hafist fyrir fjölmiðla.
Jólasýningin um Grýlusynina í Írak (eru þeir jólasveinar ?) er raunar
einnig undirbúningur undir tvær aðrar sýningar, bara upphitun. Önnur
sýningin er " lýðræðiskosningar 30. janúar 2005", hin sýningin er
réttarhaldið yfir Grýlu sjálfri, þ.e.Sadam Hussein,sem bráðum kemur.
Íslenskir fréttamenn bretta nú upp ermar. Áður hafa þeir sýnt að þeir
eru ekki vandfýsnir þegar þeir þýða og endursegja bandarískan skáldskap.