Fara í efni

BRUSSEL BANNAR SAMFÉLAGSLEGAN STUÐNING – SVARIÐ ER AÐ BANNA BRUSSEL

Nú er búið að finna það út í Brussel að opinber stuðningur við Sorpu sé óheimill. Á Íslandi eru þau eflaust mörg til sem eru þessu sammála, þar á meðal gámafyrirtæki sem vilja gjarnan ná allri sorphirðu og vinnslu sorps undir sig.

Svo eru það aðrir sem eru þessu andvígir.

Hvað er þá til ráða?

Það er til ráða að við gerum út um málið hér innanlands – ekki um alla framtíð heldur einfaldlega nú í samtímanum. Ef við komumst að annarri niður stöðu síðar þá einfaldlega breytum við stefnunni. 

Þetta væri sveigjanlegt lýðræði. Það geta fullvalda þjóðir tryggt. Slíkt leyfir Brussel hins vegar ekki.

Evrópusambandið leyfir ekki slíkt lýðræði og ekki heldur undirstofnunin EES. Þar ráða fjármagnsöflin. Þau hafa nú ákveðið að reisa skorður við því hvað samfélaginu skuli vera leyfilegt að gera varðandi sorpið – söfnun, flokkun og vinnslu. Lausnir sem ekki eru sjálfbærar – skila ekki hagnaði – verða einfaldlega að fara á hausinn.

Er þetta skynsamlegt varðandi brýnustu úrlausnarefni samtímans? Nei.
Er þetta lýðræðislegt? Nei.
Er æskilegt að miðstýra ákvörðunum af þessu tagi frá Brussel? Nei.
Vilja krataflokkar á Alþingi hafa þetta svona? Já.
Vilja hægri flokkar á Alþingi hafa þetta svona? Já.
Vilja landsmenn almennt hafa þetta svona? Varla.

Hvað er þá til ráða? Það er helst til ráða að Íslendingar segi sig frá Brussel valdinu og gangi út af hinu Evrópska efnahagssvæði, EES.

Það er óþarfi að bíða eftir 4ða Orkupakkanum.

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2025/01/29/island_samthykkir_ad_afnema_rikisadstod_til_sorpu

https://www.visir.is/g/20252681722d/lata-af-oheimilli-rikis-ad-stod-vid-sorpu

Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/