ER LÝÐHEILSUSTOFNUN HÆTT AÐ SINNA HLUTVERKI SÍNU?
Þórólfur Þórlindsson, nýr forstjóri Lýðheilsustöðvar, og
En hverjar eru fréttirnar utan úr heimi?
Varðandi hina alþjóðlegu aðlögun þá er það nú svo að þróunin er víðast hvar í gagnstæða átt við það sem frjálshyggjudeild Sjálfstæðis/Samfylkingarflokks vill í þessum efnum. Hitt skiptir þó mestu máli þegar kemur að framlagi forstjóra Lýðheilsustofnunar til þessarar umræðu, að honum er ætlað að uppfræða þjóðina hvað rannsóknir hafi leitt í ljós varðandi samhengið á milli dreifingarmáta áfengis annars vegar og áfengisneyslu hins vegar. Honum er ætlað að vekja athygli okkar á áherslum alþjóðastofnana á borð við Alþjóðaheilbrigðisstofnunina, WHO, og annarra tengdra aðila sem láta þessi mál til sín taka. Honum er væntanlega líka ætlað að veita innlendum stjórnvöldum aðhald og minna á þá stefnu og þau markmið sem þau hafa sett sjálfum sér.
Hefur ríkisstjórnin breytt um forvarnarstefnu?
Þetta hefur Lýðheilsustofnun gert þegar sams konar frumvarp og nú er til umræðu hefur verið borið undir stofnunina. Hér að neðan er slóð í eina slíka umsögn. Þar er tekin mjög eindregin afstaða gegn frumvarpinu og vísað í fjölda erlendra athugana til rökstuðnings. Þá er minnt á að frumvarpið stríði gegn markmiðum Heilbrigðisáætlunar íslenskra stjórnvalda. Þess vegna spyr ég hvort hafi breyst, heilbrigðis- og forvarnarstefna ríkisstjórnarinnar eða afstaða Lýðheilsustofnunar? Eða getur verið að Lýðheilsustofnun sé hætt að sinna hlutverki sínu með því að taka afdráttarlausa afstöðu í þágu lýðheilsumarkmiða?
http://www.althingi.is/pdf/umsogn.php4?lthing=131&malnr=241&dbnr=1577&nefnd=a
Í fyrrnefndum Kastljósþætti var birt mjög athyglisvert viðtal erlendan vísindamann á þessu sviði. Hér er slóðin og HÉR er líka samtal þeirra Sigurðar Kára og Þórólfs.