FRÉTTATILKYNNING UM KVÓTANN HEIM
13.03.2020
Eftirfarandi fréttatilkynning hefur verið send út:
"Vegna kórónaveirunnar hefur verið ákveðið að afboða auglýstan hádegisfund í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ á sunnudag um kvótann heim. Mælst er til þess að fjölmennari fundir en eitt hundrað manns falli niður og er með þessari ákvörðun orðið við þeirri beiðni þar sem allt stefndi í að fundurinn færi yfir þau mörk.
Krafan um kvótann heim stendur hins vegar óhögguð og verður næstu sunnudaga klukkan 12 á hádegi streymt umræðu um málefnið, nánar auglýst síðar á Kvótannheim.is, sem senn fer í loftið."
Hér er komin slóðin: https://kvotannheim.is/