HANDÓNÝT RÍKISSTJÓRN?
Birtist í Fréttablaðinu 11.06.14.
Þegar ég kom inn á þing um miðjan tíunda áratuginn minnist ég kröftugs málflutnings gegn kvótakerfinu. Með því væri verið að færa tilteknum aðilum eignarhald á sjávarauðlindinni. Framsalið væri augljósasta vísbending þessa auk veðsetningar á óveiddum afla.
Þessu svöruðu verjendur kerfisins með því að vísa í fyrstu grein laga um stjórn fiskveiða frá 1990 en þar segir: „Nytjastofnar á Íslandsmiðum eru sameign íslensku þjóðarinnar. Markmið laga þessara er að stuðla að verndun og hagkvæmri nýtingu þeirra og tryggja með því trausta atvinnu og byggð í landinu. Úthlutun veiðiheimilda samkvæmt lögum þessum myndar ekki eignarrétt eða óafturkallanlegt forræði einstakra aðila yfir veiðiheimildum."
Nú líður og bíður. Haldið er áfram að veðsetja auðlindina og færist smám saman í vöxt að taka fjármuni sem þannig eru fengnir út úr sjávarútvegi og braska með á óskyldum sviðum. Á bak við fjármagnið var hins vegar engin verðmætasköpun í núinu. Þarna hófst ferill sem endaði í október 2008 með allsherjarhruni.
En til að gera langa sögu stutta þá komu í tíð síðustu ríkisstjórnar fram tillögur um að krefja útgerðarfyrirtæki um talsverðan aðgangseyri að auðlindinni. Þessu var mótmælt af hálfu útgerðarfyrirtækja og bandamanna þeirra. Ég minnist fyrrum lagaprófessors sem hélt því blákalt fram að með gjaldtökunni væri gengið á eignarréttinn. Þrátt fyrir tilvitnaða grein fiskveiðistjórnunarlaga hefði myndast hefðarréttur til eignar. Hann yrði að virða! Gjaldtakan væri því óheimil.
Í náttúruverndarlögum eru skýr ákvæði um heimildir til gjaldtöku. Bannað að rukka ferðamenn í eiginhagnaðarskyni. Engu að síður tíðkast það við Kerið í Grímsnesi. Þar eru teknir peningar af fólki þótt það stríði gegn landslögum og þúsund ára hefð.
Ríkisstjórnin lætur þetta gott heita. Ferðamálaráðherrann hefur meira að segja sagt að rukkunin gangi prýðisvel! Þar með hefur ríkisstjórnin brugðist því grundvallarhlutverki sínu að verja fólk gegn ránsmönnum. Slík ríkisstjórn er handónýt.
Hvers vegna þá spurningarmerkið í fyrirsögninni?
Það er vegna þess að ríkisstjórnin er meðvirk í því að kvótavæða náttúru Íslands, skapa ránsmönnum hefðarrétt til tollheimtu. Þar með er hún landeigendum við Kerið ekki ónýt.