HÁSKÓLINN ENDURSKOÐI ÁKVÖRÐUN SÍNA
31.08.2013
Í opnu lýðræðisþjóðfélagi þurfa menn iðulega að gjalda synda sinna í opinberri umræðu. Ekki eru áfellisdómar almenningsálitsins alltaf réttlátir dómar þótt oft séu þeir það. En þeir eru þungir. Mér segir hugur að þyngstu dómar sem kvðenir eru upp séu þeir sem koma frá almannarómi og jafnframt þeim einstaklingum sem þá hljóta þungbærastir.
Til hliðar og ofar þessum óformlega almannadómstól er síðan réttarkerfið. Það kerfi var smíðað til þess að dómar yrðu aldrei felldir á forsendum reiði - þess vegna réttmætrar reiði - eða hefnigirni, heldur samkvæmt lögum og reglum sem réttarríkið hefur á undangengnum öldum smám saman þróað.
Nú fáum við þær fréttir úr Háskóla Íslands að einstaklingur sem beðinn hafði verið um að halda námskeið um tiltekið efni við skólann hafi fengið orðsendingu um afturköllun á þeirri beiðni vegna þess - að því er fram kemur - að dómstóll háskólaganganna hafi dæmt manninn úr leik. Allir vita um hvaða einstakling er að ræða enda honum hvergi hlíft í opinberri umræðu. Ástæðan fyrir því að ég nefni hér engin nöfn er einfaldlega sú að þessi umræða snýst ekki um einstaklinga heldur grundvallarreglur í réttarríki sem vill kallast mannréttindaþjóðfélag.
Með ákvörðun sinni hefur Háskóli Íslands gerst sekur um brot á mannréttindum og hljótum við að krefjast þess að hann endurskoði hana.