HEIÐUR AÐ HEIMSÓKN
Það yljar mér alltaf um hjartarætur að hlýða á Lúðrasveit Verkalýðsins - sjá hana og heyra. Og einstaklega vænt þótti mér um þegar sveitin tók Nallan af öllum lífs og sálarkröftum úti fyrir höfuðstöðvum BSRB á baráttudegi verkalýðsins - auk annarra vel valinna laga. Okkur var heiður að heimsókn Lúðrasveitar Verkalýðsins.

Dagurinn var litríkur og kröftugur. Þórveigu Þormóðsdóttur, formanni Félags starfsmanna Stjórnarráðsins mæltist
einstaklega vel, þegar hún varaði við niðurskurði í velferðarþjónustunni. Það ætti ekki að gera atlögu að störfum því slíkt myndi veikja innviði heilbrigðiskerfisins og bitna sérstaklega illa á kvennastéttum. Gylfi Arnbjörnsson, forseti

Mikilvægt er að atvinnurekendur og fulltrúar verkalýðshreyfingarinnar einnig, átti sig á því hvenær og hvenær ekki - í hvaða málum og hvaða málum ekki - þeir hafa umboð til að tala í nafni þjóðarinnar.
Fjölmenni mun alls staðar hafa verið í 1. maí kaffi verkalýðsfélaga og stjórnmálasamtaka í Reykjavík og eflaust víðar á landinu.
Fullt var út úr dyrum hjá VG í Reykjavík en því miður missti ég af dagskránni því mér dvaldist á Grettisgötunni, í höfuðstöðvum BSRB. Þar var fullt hús og rúmlega það, kræsingar framreiddar af Kvennakórnum, sem tók líka nokkur lög. Frábærar veitingar, frábær stemning.
Ekki má gleyma að þakka Villa og naglbítunum og Lúðrsveit Verkalýðsins á Austurvelli, Sigtryggi Baldurssyni og slagverksmönnum í Parabólum, Súsönnu Svavarsdóttur, ágætum fundarstjóra og kröftugum talsmanni framhaldskólanema, Stefáni Rafni Sigurbjörnssyni.
Takk fyrir daginn.
Frábærar veitingar í boði BSRB, framreiddar af Kvennakórnum.