Fara í efni

HEIMILDIN MINNIR Á ÁBYRGÐ OG SAMSEKT

Áhrifaríkt aukablað fylgdi Heimildinni 11. október síðastliðinn. Það blað hverfur ekki úr huga mér og það á það heldur ekki að gera.
Þarna er að finna nöfn 11.355 palestínskra barna og 40 ísraelskra barna yngri en 18 ára. Þetta eru nöfn þeirra barna sem kennsl hafa verið borin á en talið er að líkin sem grafin eru undir rústum skipti þúsundum. Ætlað er að barnafjöldinn sem myrtur hefur verið nemi 17 þúsundum hið minnsta. Þetta þýðir að 46 börn hafa verið drepin að meðaltali á hverjum einasta degi frá því morðaldan hófst.

Þarf að segja meira?

Hvernig væri að utanríkisráðherra Íslands bankaði upp á í bandaríska og breska sendiráðinu og krefðist þess að þegar í stað hættu Bandaríkjamenn og Bretar vopnasendingum til Ísrales því að þetta eru vopnin sem börnin eru drepin með.

Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.