HUGSAÐ TIL BAKKAVARAR
12.10.2008
Haustið 2006 skrifaði ég grein í Morgunblaðið undir fyrirsögninni, „Bankarnir rífi sig ekki frá samfelaginu." Tilefni greinarinnar voru aðfinnslur og glósur sem að mér hafði verið beint fyrir að vara við óvarlegum fjárfestingum og óhófsbruðli í fjárfestingargeiranum og þeim áhrifum sem það væri farið að hafa á íslenskt samfélag og ætti eftir að hafa ef ekki yrði grundvallarbreyting á.
Þetta þóttu óendanlega afturhaldssöm og heimskuleg sjónarmið á þessum tíma og til marks um að ég hlyti að vera andvígur bankastarfsemi og jafnvel atvinnurekstri Íslendinga erlendis. Þetta var að sjálfsögðu út í hött, ég hef alla tíð verið einarður stuðningsmaður íslenkra banka og dáðst að því sem vel hefur verið gert af hálfu hálfu Íslendinga ínnanlands og utan. Ég hef hins vegar viljað breyta lagaumgjörðinni og úthýsa óhófinu.
Í framannefndri grein segir:
„Að lokum, nokkur orð um útrásina. Almennt gleðjumst við landarnir yfir árangri af fjárfestingum erlendis. Í sumum tilvikum hefur líka verið sýnd stórkostleg hugkvæmni og framsýni og vil ég þar nefna árangur bræðranna sem kenna sig við Bakkavör. Bakkavararbræður hafa haslað sér völl í Bretlandi og víðar og margt af því sem ýmsir aðrir íslenskir aðilar eru að gera víðs vegar um heiminn er aðdáunarvert."
Bakkavararbræður hafa byggt fyrirtæki sitt upp frá grunni af mikilli ósérhlífni og elju og þeir þekkja mótbyr og erfiðleika af eigin raun. Það vakti athygli mína þegar ég fékk tækifæri til að hitta þá Lýð og Ágúst Guðmundssyni að máli í London fyrir nokkrum misserum og kynnast starfsemi á þeirra vegum, að þar voru menn með ábyrga afstöðu til meðeigenda sinna, sem á meðal annarra voru íslenskir lífeyrissjóðir. Þetta kom upp í hugann þegar Stöð 2 sagði frá því á föstudag að Bakkavör stæði í harðri baráttu fyrir lífi fyrirtækisins: "Við erum að hugsa um hag hluthafa og ekki síst lífeyrissjóðanna sem eiga stóran hlut í Bakkavör segir Lýður Guðmundsson, stjórnarformaður Existu".Ábyrgð Gordons Browns, forsætisráðherra Bretlands sem gerði ólöglega aðför að íslenskum bönkum í Bretlandi í síðustu viku, hefur stórskert möguleika fyrirtækja á borð við Bakkavör að komast lífs af úr því gerningarveðri sem nú gengur yfir. Skömm bresku ríkisstjórnarinnar er mikil. Þeim mun ánægjulegra yrði ef Bakkavör og önnur flaggskip í íslenskum atvinnurekstri erlendis komast lífs af.
Hér er slóð í ívitnaða blaðagrein: https://www.ogmundur.is/is/greinar/bankarnir-rifi-sig-ekki-fra-samfelaginu