INNANLANDSFLUGVÖLLUR Í REYKJAVÍK
Birtist í Fréttablaðinu 13.07.11.
Nokkrar umræður hafa spunnist í fjölmiðlum um framtíð Reykjavíkurflugvallar. Tilefnið er að í burðarliðnum er samkomulag innanríkisráðuneytis og Reykjavíkurborgar sem felur í sér að ráðist yrði í löngu tímabærar endurbætur á aðstöðu fyrir farþega og starfsfólk innanlandsflugsins á Reykjavíkurflugvelli. Um þetta eru ríki og borg sammála. Komast þurfi út úr því öngstræti aðgerðarleysis sem þessi mál hafa verið í.
Kyrrstaða ekki boðleg
Á þenslutímanum var hafist handa með metnaðarfull áform um hönnun og byggingu samgöngumiðstöðvar á norðaustur hluta flugvallarsvæðisins.
Forsvarsfólk Reykjavíkurborgar var hins vegar aldrei sátt við þessi áform og heyrðust þau sjónarmið að þar með yrði framtíð flugvallarins niðurnjörvuð um ókominn tíma. Á undanförnum árum hafa hvorki ríki né borg viljað hnika til í afstöðu til samgöngumiðstöðvarinnar og við það hefur setið. Á meðan hefur aðstaðan drabbast niður og er engan veginn sæmandi.
Þau áform sem nú eru uppi byggjast á því að báðir aðilar taka tillit til sjónarmiða hins. Þannig segjast talsmenn borgarinar enn stefna á flutning flugvallarins í framtíðinni en ég sem ráðherra samgöngumála hef marglýst því yfir að ég vilji hafa flugvöllinn þar sem hann nú er og að ég muni beita mér fyrir því að svo verði.
Ríkið á flugvallarlandið að mestu
Enda þótt Reykjavíkurborg hafi skipulagsvald innnan borgarmarkanna verður ekki fram hjá því horft að landið undir flugvellinum er að mestu leyti í eign ríkisins. Allt eru þetta staðreyndir máls og þóttu fleirum en mér undarlegar yfirlýsingar Páls Hjaltasonar, formanns skipulagsráðs Reykjavíkurborgar, að hugmyndir um að flugvöllurinn yrði áfram í borginni væru byggðar á misskilningi. Svo er ekki.
Um framtíðina í þessu efni er hins vegar ekki samkomulag. Þess vegna er niðurstaðan nú vonandi sú að reist verði ný flugstöð Skerjarfjarðarmegin flugvallar sem yrði hönnuð með þeim hætti að hún gæti átt eftir að víkja. Þetta er leiðin út úr öngstræti kyrrstöðunnar.
Þótt sjálfur hafi ég á sínum tíma verið hlyntur samgöngumiðstöð í norðausturgeira flugvallarins horfist ég í augu við þá staðreynd að fyrir henni er ekki vilji hjá borginni. Annað hefur breyst frá því þessi áform voru uppi: Peningaleysi. Það eitt að byggja flughlöð í norðausturgeira flugvallar myndi samkvæmt áætlunum kosta tæpan milljarð. Flughlöð er hins vegar fyrir hendi vestan megin á vellinum að mestu leyti og sparar það stórfé að nýta það.
Jafnvægi í flutningum
Fram kemur í Fréttablaðinu 8. júlí að Páli Hjaltasyni þykir ágæt hugmynd að flytja flugvöllinn til Keflavíkur eða með öðrum orðum leggja Reykjavíkurflugvöll niður. Ekki þætti mér ótrúlegt að einmitt þetta gerðist ef vellinum yrði lokað í Reykjavík. Þætti mér það afleitt. Ég er þeirrar skoðunar að við eigum að dreifa flutningum um landið betur en nú er gert á milli sjávar, lofts og láðs. Til að þetta takist þarf að koma á strandflutningum og efla flugsamgöngur.
Annar veruleiki í dag en í gær
Hvað með lýðræðið?
En hvað með lýðræðið? Flugvallarmálið fór vissulega í almenna atkvæðagreiðslu. Þar fékkst niðurstaða þótt þátttaka væri mjög dræm. Ég er hins vegar sammála þeim sem halda því fram að þetta mál komi landsmönnum öllum við, ekki Reykvíkingum einum og eigi þess vegna að bera það upp við þjóðina alla. Afstaðan í flugvallarmálinu gengur þvert á alla flokka. Það höfum við rækilega verið minnt á í viðbrögðum við þessari umræðu nú síðustu daga.