Fara í efni

LÁTIÐ EKKI SJÁLFSTÆÐISFLOKKINN EYÐILEGGJA KJARAVIÐRÆÐURNAR


Birtist í Fréttablaðinu 20.03.19.
Ég hef alltaf haft miklar efasemdir um samstarf félagshyggjuflokka við Sjálfstæðisflokkinn. Efasemdir mínar hafa snúist um prinsipp og praksis.
Prinsippin eru þau að meini menn eitthvað með pólitískum stefnumarkmiðum sínum, þá kennir reynslan að þau fari forgörðum í slíku samstarfi á milli hægri og vinstri, því hætt er við að annar hvor aðilinn svíki sína umbjóðendur.
Praksisinn er svo einmitt sá að samstarfið veldur því að annar, og yfirleitt minni aðilinn, veslast upp, tærist fyrst að innan og leggur síðan af – í fylgi. Mín kynslóð man ömurlegt hlutskipti Alþýðuflokksins sáluga, Framsókn var nær dauða en lífi þegar hún slapp úr hrammi Íhaldsins og nú er ástæða til að óttast um VG.
Tilefni þessara hugleiðinga nú er skattaútspil ríkisstjórnarinnar á ögurstundu þegar láglaunafólk heyr baráttu nánast upp á líf og dauða.
Lofað hafði verið myndarlegri endurskoðun á skatta- og bótakerfinu sem hefði það í för með sér að hlutur láglauna- og millitekjufólks vænkaðist. Verkalýðshreyfingin tefldi síðan fram tillögum sem hefðu nákvæmlega þetta í för með sér, næðu þær fram að ganga, en vel að merkja, til að koma í veg fyrir tekjutap ríkissjóðs var gert ráð fyrir því að hlutur hátekjufólks vænkaðist ekki og eignafólk greiddi meira en það gerir nú.
Sjálfstæðisflokkurinn sem aldrei gleymir því hver hann er, varnarvirki hátekju-Íslands, tekur þetta ekki í mál og fjármálaráðherrann slengir í nafni ríkisstjórnarinnar fram skattatillögum sem eru nánast sem löðrungur á verkalýðshreyfinguna og vel að merkja samstarfsflokkana í ríkisstjórn - hefði maður haldið: Skattalækkun upp á 6.700 krónur, sú sama fyrir marg-milljón króna fólkið og þau sem eiga ekki til hnífs og skeiðar.
Nú þurfa VG og Framsókn og þeir sjálfstæðismenn sem eiga í sér félagspólitíska taug – einu sinni voru þeir til - að rísa upp í sameiningu og krefjast þess að Sjálfstæðisflokkurinn sýni ábyrgð og komi til móts við verkalýðshreyfinguna með myndarlegum jöfnunaraðgerðum í sköttum, vaxtabótum, húsaleigubótum og framlagi til félagslega leigukerfisins hjá sveitarfélögum.
Það er ekki sæmandi að horfa þegjandi og aðgerðarlaus á láglauna- og millitekjufólk heyja þá baráttu sem löngu var tímabær.  

https://www.visir.is/g/2019190329994/latid-ekki-sjalfstaedisflokkinn-eydileggja-kjaravidraedurnar- 

https://eyjan.dv.is/eyjan/2019/03/20/ogmundur-ottast-um-vg-latid-ekki-sjalfstaedisflokkinn-eydileggja-kjaravidraedurnar/

https://www.frettabladid.is/skodun/lati-ekki-sjalfstaeisflokkinn-eyileggja-kjaraviraeurnar