NOKKRAR ÁBENDINGAR ÚR SKAGAFIRÐI
12.03.2008
Fjármálaeftirlitið er opinber stofnun sem ætlað er að standa vörð um að farið sé að lögum og reglum í fjármálaheiminum. Það var því eðlilegt að stofnfjárhafar í Sparisjóði Skagafjarðar, sem töldu sig órétti beitta leituðu til þessarar stofnunar þegar þeir töldu á sér brotið. Það var í tengslum við yfirtöku Sparisjóðs Siglufjarðar á sjóðnum.
Skagfirsku stofnfjáreigendunum þótti ekki farið að settum reglum - hagsmunaaðilar væru að skáka stofnfjárhlutum sín í milli með ólögmætum hætti - og vildu þeir ekki una því að fá ekki aðgang að upplýsingum sem gætu varpað ljósi á lögmæti yfirtökunnar.
Ekki reyndist það viðleitninnar virði að leita til Fjármálaeftirlitsins. Langur tími leið þar til stofnunin sýndi eitthvert lífsmark svo heitið geti en virðist síðan ekki gera meiri kröfur til sjálfrar sín en svo að finna þaðmsér helst til afreka að hafa svarað stofnfjáreigendum „skriflega"!
Þetta eru sannast sagna kaldar kveðjur til fólks sem staðið hefur í strangri baráttu. Kærumál fólksins heita á kanselímáli Fjármálaeftirlitsins „ábendingar".
Eins og sjá má á netslóð er hér um að ræða langa baráttu sem háð hefur verið í fjölmiðlum og fyrir dómstólum. Ef baráttufólkið hefði viljað hagnast sjálft persónulega hefði það farið að dæmi margra annarra í svipaðri stöðu og reynt að selja hluti sína hæstbjóðenda. Því var ekki að heilsa enda á ferðinni hugsjónafólk sem er að berjast fyrir því að sparisjóður starfi innan héraðs og í þágu þeirra sem héraðið byggja.
Fyrir neðan netslóðina er yfirlýsing, sem stofnfjáreigendurnir sendu frá sér í dag.
https://www.ogmundur.is/is/greinar/slagurinn-um-sparisjodina
Yfirlýsing frá hópi stofnfjárhafa í Sparisjóði Skagafjarðar
Fjármálaeftirlitið hefur nú birt úrskurð sinn varðandi yfirtöku Sparisjóðs Siglufjarðar á Sparisjóði Skagafjarðar um 7 mánuðum eftir umdeildan fund stofnfjárhafa í Sparisjóði Skagafjarðar. Þrátt fyrir þann tíma sem FME hefur tekið sér er úrskurðurinn óvandaður og órökstuddur. Þá er enn ósvarað fjölda fyrirspurna og alvarlegra athugasemda sem beint hefur verið til FME er varða lögmæti samrunaferlisins og meðferðar stofnfjárhluta og lögmæti aðalfundar sjóðsins. Í úrskurðinum segir hinsvegar “Fjármálaeftirlitinu bárust nokkrar ábendingar frá stofnfjáreigendum í Sparisjóði Skagafjarðar vegna fyrirhugaðs samruna og hefur öllum sem sendu inn ábendingar verið svarað skriflega” Þetta er einfaldlega rangt. Þá hefur Fjármálaeftirlitið í tvígang verið beðið um gögn er varða samrunann og í bæði skiptin hafnað því. Í ljósi þeirra alvarlegu athugasemda sem komið hafa fram og þess langa tíma sem liðinn er frá aðalfundi sparisjóðsins er óviðunandi að FME skuli ekki færa haldbær rök fyrir niðurstöðu sinni. Aðalfundur Sparisjóðs Skagafjarðar þann 13. ágúst síðastliðinn samþykkti yfirtöku Sparisjóðs Siglufjarðar á sjóðnum. Atkvæðaseðlar um yfirtökuna voru 96. Af þeim voru 60 stofnfjáreigendur í Skagafirði sem höfnuðu yfirtökunni en 36 sem samþykktu. Úrslitum réði að samstæða Kaupfélags Skagfirðinga hafði selt mestan hluta stofnfjár síns út úr héraði, virka eignarhluti, til valinna aðila. Það er ekki nýtt fyrir stofnfjárhöfum í Sparisjóði Skagafjarðar að Fjármálaeftirlitið bregðist hlutverki sínu. Skemmst er að minnast þess þegar almennir stofnfjárhafar í Skagafirði voru knúnir til að sækja rétt sinn til Hæstaréttar þegar sömu aðilar og nú áttu hlut að máli, með samþykki FME, komu stofnfjárhlutum sem voru í félagslegri eigu Kaupfélags Skagfirðinga í hendur fjölskyldna stjórnenda kaupfélagsfyrirtækjanna. Þeir gjörningar voru þá ómerktir fyrir Hæstarétti. Fyrir aðgerðaleysi Fjármálaeftirlitsins eru hagsmunir almennra stofnfjárhafa í Skagafirði enn á ný bornir fyrir borð. Almennir stofnfjáreigendur í Skagafirði munu á næstu dögum enn á ný íhuga stöðu sína í ljósi niðurstöðu Fjármálaeftirlitsins.
f.h. hóps almennra stofnfjáreigenda í Sparisjóði Skagafjarðar
Sigurður Guðmundsson
Sverrir Magnússon
Gísli Árnason
Gunnar Rögnvaldsson
Sigurður Þorsteinsson
Bjarni Jónsson