Fara í efni

STYRMIR GUNNARSSON KVADDUR

Fyrstu samtöl sem við Styrmir Gunnarsson áttum voru ekki sérlega vinsamleg. Ritstjóra Morgunblaðsins þótti formaður BSRB vera yfirgangssamur og óvæginn í gagnrýni á blað hans og formanni BSRB þótti ritstjórinn draga taum markaðshyggjunnar langt umfram það sem réttlætanlegt væri.

Svo leið tíminn. Hvorugur sló af í afstöðu sinni. En síðan fundust samnefnarar sem ekki sundruðu heldur sameinuðu.

Það gerðist til dæmis þegar við Styrmir Gunnrsson vorum mættir á biðstofur borgarstjóra og bæjarstjóra á suðvestur-horninu að biðja um gott veður fyrir Klúbbinn Geysi, sjálfshjálparstarfsemi fólks sem á við geðræn vandamál að stríða. Við þóttum heldur óvæntir samherjar. En að þessu sinni vorum við sömu megin borðsins í viðræðum við hið póltíska vald. Við vorum báðir stjórnarmenn í Klúbbnum Geysi. Hann sem reynslumikill maður nokkuð eldri en ég. Hann miðlaði, ég nam.

Í þessu starfi kynntist ég allt öðrum manni en þeim sem ég hafði verið ósáttur við fyrr á tíð. Nú kynntist ég hugsjónamanni að berjast af einlægni fyrir góðan málstað. Kraftmikill og ósérhlífinn.

Við vorum líka samherjar í baráttunni gegn þriðja orkupakkanum. Aftur þar var Styrmir öflugur liðsmaður. Í þessari baráttu vildi hann standa vörð um lýðræðið og taldi að fullvalda Ísland væri forsenda þess að landsmenn gætu búið við lýðræði. Ekki mætti framselja ákvörðunarvaldið úr hendi þjóðarinnar.

Eins er ógetið sem ætíð mun tengjast minningu Styrmis Gunnarssonar og það var áratuga barátta hans gegn kvótakerfinu í sjávarútvegi. Þar stóð hann vaktina sem enginn annar.  

Nú er Styrmir Gunnarsson fallinn frá. Ég kveð hann með virðingu og eftirsjá.

Þetta skrifaði ég þegar Styrmir lét af ritstjórastarfi á Morgunblaðinu: https://www.ogmundur.is/is/greinar/styrmir-af-morgunbladsvaktinni

Um bók Styrmis: https://www.ogmundur.is/is/greinar/frjals-madur-er-ottalaus

Styrmir um Magmadeiluna: https://www.ogmundur.is/is/greinar/styrmir-og-forsendur-sjalfstaedis

Aðskiljanlegar greinar þar sem Styrmir kemur við sögu á þessari heimasíðu. Ekki þó tæmandi listi:

https://www.ogmundur.is/is/greinar/styrmir-og-egill

https://www.ogmundur.is/is/greinar/his-masters-voice

https://www.ogmundur.is/is/greinar/hja-gunnari-smara-med-styrmi

https://www.ogmundur.is/is/greinar/upp-tekur-sig-gamalt-mein

https://www.ogmundur.is/is/greinar/klubburinn-geysir-20-ara-afmaelisavarp

https://www.ogmundur.is/is/greinar/hver-ma-skrifa-um-hvern

https://www.ogmundur.is/is/greinar/smitandi-kraftur

https://www.ogmundur.is/is/greinar/maelikvardi-a-gaedi

https://www.ogmundur.is/is/greinar/gedhjalp-okkar-mal

https://www.ogmundur.is/is/greinar/thegar-ofbeldid-raedur-for

https://www.ogmundur.is/is/greinar/afmaelismalthing-i-norraena-husinu

https://www.ogmundur.is/is/greinar/um-utanrikismal-og-aldur

https://www.ogmundur.is/is/greinar/hvar-verdur-naesti-kvotafundur

https://www.ogmundur.is/is/greinar/i-nafni-orkunnar-okkar