BRÁÐABIRGÐA-RÍKISSTJÓRN GERIR ENGIN KRAFTAVERK
Sæll félagi og vinur.
Það er gaman að annars vegar hvernig stjórnmálamaður og hins vegar hinn almenni kjósandi lítur á málin. Formaður VG gefur Viðskiptaráðherra ½ prik fyrir afsögn hans en maðurinn á götunni fagnar því að í fyrsta sinn í sögu lýðveldisinns segir ráðherra af sér vegna kröfu frá fólkinu á götunni. Þarna finnst mér koma í ljós megin munur á þér og öðrum stjórnmálamönnum. Þú ert ekki bara í sambandi við þröngan hóp sem er sammála þér í einu og öllu. Þú hlustar á fólk með mismunandir skoðanir og dregur svo þínar ályktanir af þeim. Annað sem ég er að velta fyrir mér. Hvers vegna liggur VG svona á að komast í stjórn? Af hverju bíðið þið ekki eftir kosningum? Þær verða í síðasta lagi 9. mai. Væri ekki skynsamlegra að setjast í stjórn með umboð frá þjóðinni heldur en að fara að mynda bráðabirgðastjórn með SF? Mér finnst Steingrímur (og þá væntalega VG) allt of æstir að komast í stjórn og þá læðist að mér sá grunur að flokkurinn líti svo að þetta sé hans eina von um að komast til valda. Ef að flokkurinn hefði hins vega trú á sér biði hann eftir umboði frá þjóðinni. Ég hef ekki trú á því að bráðabirgðastjórn myndi ná að gera einhver kraftaverk. SF er í allsherjar upplausn núna og að mínu mati væri það glapræði að fara að mynda bráðabirgða stjórn með henni.
Að lokum vil ég vekja athygli þína að skoðanakönnun í Fréttablaðinu í þar sem fram kemur að tæp 60% eru á móti aðild að ESB og finnst mér það frábærar fréttir.
Með kveðju,
Sigurbjörn Halldórsson