AÐ SKJÓTA SJÁLFAN SIG Í FÓTINN
Framsóknarflokkurinn er afskaplega nýtinn flokkur. Margoft hefur komið fram hve vel hann nýtir völd sín – alveg til hins ítrasta. Til marks um þetta má nefna að hugtakið einkavinavæðing varð til í stjórnartíð hans. Framsóknarflokkurinn er líka nýtinn hvað varðar kosningaloforð. Hann notar ítrekað sömu kosningaloforðin í aðdraganda kosninga. Kjörtímabilið notar hann síðan til að svíkja loforð sín en endurnýjar þau síðan í aðdraganda næstu kosninga. Þannig koll af kolli.
Flest met slógu þeir þó í sameiningu Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur með hinum makalausu Landsímafjárlögum haustið 2005. Þá höfðu flokkarnir selt Landsímann í óþökk þjóðarinnar – um það báru skoðanakannanir vitni. Andvirði Símans átti að ráðstafa samkvæmt þessum sérstöku Landsímafjárlögum – aðeins var um að ræða vinsæl mál, ekkert NATÓ-framlag þar!
Þetta var að sjálfsögðu mjög ósvífið ráðslag, fyrst og fremst óljós loforð inn í framtíðina – inn á næstu kjörtímabil. Svo fór og að strax á fyrsta ári var farið að svíkja Landsímafjárlögin.
Eitt loforðið í Landsímafjárlögum sneri að geðfötluðum. Milljarður átti að ganga til sérstakra úrræða þeim til hagsbóta. Haustið 2005 var samþykkt að veita 200 milljónum vegna þessa og á þessu ári eiga að koma 200 milljónir til viðbóttar. Ekki kom króna á síðasta ári og útistandandi eru sex hundruð milljónir. Þær bíða fjárlaga komandi ára!
Á þessu vakti formaður Geðlæknafélags Íslands athygli. Fyrir vikið uppskar hann reiði félagsmálaráðherra sem beindi að honum föstum skotum í fréttatilkynningu frá ráðuneyti sínu, nokkuð sem vægast sagt orkar tvímælis af því að fyrst og fremst er um að ræða pólitískar skylmingar ráðherrans. Í yfirlýsingu ráðuneytisins segir m.a. "Vegna ummæla formanns Geðlæknafélags Íslands í fjölmiðlum um framlög ríkisins til átaks í þjónustu við geðfatlaða 2006-2010 vill félagsmálaráðuneytið taka eftirfarandi fram: Ríkisstjórnin ákvað að leggja átakinu til 1 milljarð króna af söluandvirði Símans og 500 milljónir króna úr Framkvæmdasjóði fatlaðra. Þessi framlög renna óskert til stofnkostnaðar og uppbyggingar á þjónustuúrræðum."
Þessi framlög renna "óskert til stofnkostnaðar og uppbyggingar..." Áður en
Þetta gerði