Á AÐ SVIPTA OKKUR ÆRUNNI?
08.10.2008
Getur verið að Íslendingar ætli ekki að standa við lagalegar og siðferðilegar skuldbindingar gagnvart breskri alþýðu manna sem í góðri trú lagði peninga sína á sparireikninga Landsbankans í Bretlandi? Ég vil minnka við mig næstu árin en glata ekki æru minni. Hvað finnst þér Ögmundur?
Sunna Sara
Þakka bréfið Sunna Sara. Ég er þér hjartanlega sammála.
Kv.
Ögmundur