Á FAGMENNSKA ERFITT UPPDRÁTTAR Á FJÖLMIÐLUM?
Stjórnmálamenn eiga stöðugt að sæta aðhaldi og gagnrýni. Opinberar stofnanir eiga að láta frá sér heyra þegar þeim þykir óeðlilega að sér þrengt. Það á við um Landspítalann, Lögregluna og RÚV. Svo er það okkar stjórnmálamannanna að réttlæta okkar gjörðir eða leiðrétta kúrsinn eftir atvikum. Þjóðfélag í þrengingum á að loga í opinni óheftri og gagnrýninni umræðu.
Til þess þurfum við á kröftugum fjölmiðlum að halda.
Fréttamenn þurfa að fá hvatningu til að viðhafa gagnrýnin vinnubrögð. Það verður ekki gert með því að reka þá sem sýna góða viðleitni!
Eyjan gerir því skóna að Ingimar Karl Helgason, fréttamaður á Stöð 2 hafi verið látinn gjalda skoðana sinna þegar honum var sagt upp störfum fyrir fáeinum dögum. Ég hef ekki heyrt Stöð 2 andmæla þessu. Ingimar Karl var eftir því sem ég best veit, vandaður fréttamaður sem kappkostaði að allar hliðar mála kæmu fram. Sjá http://ordid.eyjan.is/2011/02/09/sagt-upp-vegna-gagnryni/
Lára Hanna Einarsdóttir var látin hætta sem pistlahöfundur á RÚV. Skýrningin var ósannfærandi. Henni var gefið að sök að hafa birt pistla sína á vefritinu smugan.is! Lára Hanna er án efa einn kröftugasti þjóðfélagsrýnir sem fram hefur komið á vettvangi fjölmiðla í seinni tíð.
Þórhallur Jósepsson var látinn hætta á RÚV fyrir þá "sök" að hafa unnið að bók um Árna Mathiesen, fyrrverandi fjármálaráðherra, samhliða fréttamennskunni. Þórhallur naut trausts sem vandaður fréttamaður.
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir var látinn taka poka sinna af Mogga þrátt fyrir kraftmikla fréttamennsku og ótvíræðar vinsældir.
Ég læt upptalningu lokið þótt áfram gæti ég haldið.
Mér finnst að ritstjórnir á framangreindum fjölmiðlum skuldi okkur skýringar. Er það tilviljun að gagnrýnir fréttamenn og greinendur eiga erfitt uppdráttar á íslenskum fjölmiðlum?
Getur verið að fjölmiðlarnir komi til með að reka lestina í endurnýjun eftir hrun?