ÆTLAR DÓMSMÁLA-RÁÐHERRA AÐ KÆRA SIGRÍÐI TÓMASDÓTTUR FRÁ BRATTHOLTI POST MORTEM?
28.09.2008
Ögmundur...
Ég sá á vef dómsmálaráðherra að það ætti að dæma og sekta þá mótmælendur, ef ekki að loka þá inni, sem sekir fyndust um að hafa mótmælt virkjunum á Íslandi í þágu alþjóða álfyrirtækja, og taka hart á þeim sem höfðu við óspektir.
Auðvitað mun þetta kosta skattgreiðendur stórfé, en hvað skal ekki gera í nafni réttvísinnar?
Þá datt mér í hug Ögmundur, hvort ekki ætti að spyrja dómsmálaráðherrann hvort hann ætli kannski að dæma Sigríði Tómasdóttur frá Brattholti postmortem fyrir að hafa hótað morði, þ.e. sjálfsmorði, ef menn ætluðu að virkja uppáhalds fossinn hennar í þágu rafvirkjunar, sem hlýtur að vera mikið meiri glæpur en nokkur umræddra mótmælenda eru ætlaðir sekir um...
Kveðja,
Úlfljótur