ÁHUGAVERÐ RÁÐSTEFNA
07.11.2012
Næstkomandi laugardag verður haldin ráðstefna í Ráðhúsi Reykjavíkur um lýðræði á 21. öld. Að ráðstefnunni stendur Innanríkisráðuneytið í samstarfi við lýðræðisfélagið Öldu, Umboðsmann barna og Reykjavíkurborg. Ég er sannfærður um að þessi ráðstefna verður áhugaverð og vek ég því athygli á henni í tíma og hvet áhugafólk um lýðræði að mæta á laugardag.
Sjá nánar um dagskrá ráðstefnunnar: http://www.innanrikisraduneyti.is/media/frettir-2012/lydraedi_dagskra.pdf
https://www.facebook.com/events/436587199738559/