BANKABALL NÚMER TVÖ
Sæll Ögmundur, ég vildi vita hvort þú styddir þessar erlendu lántökur bankanna í ljósi þess að þær leiddu til sögulegs fjármálahruns hér fyrir 7 árum. Auk þess vildi ég kanna afstöðu þína til þess að verja neytendur gegn óhóflegum þjónustugjöldum, af 80 milljarða hagnaði bankanna þriggja voru 30 milljarðar bara í formi þjónustutekna. Eftir allt erfiðið og blóðtökuna sýnist manni að lánaball númer 2 sé að hefjast, er ekki hægt að koma í veg fyrir þessa þróun? Svo virðast sérlögmál gilda um kjör stjórnenda fjármálafyrirtækja, það virðist ekkert hafa breyst eftir hrun,
kveðja,
Gunnar
Sæll Gunnar,
nei, ég styð ekki banakaball númer tvö sem þú réttilega kallar svo, sbr.: https://www.ogmundur.is/is/fra-lesendum/fjarmalakerfid-profraun-a-okkur-oll
Kv.,
Ögmundur