BARÁTTAN UM ÍSLAND
Sæll Ögmundur.
Ég skil átökin sem eru að magnast nú sem baráttu um Ísland. Baráttan um Ísland hófst eða staðfestist í ræðu Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, flokksins sem ber ábyrgð á efnahagshruninu. Flokksins sem leiddi ríkisstjórnir fyrir, í og fyrst eftir hrunið.
Bjarni Benediktsson vill ekki tala um fortíð Sjálfstæðisflokksins. Hann vill ekki tala um af hverju flokkur hans vildi afnema "eftirlitsþjóðfélagið", eins og forveri hans kallaði það. Hann vill ekki segja okkur frá því af hverju framlög til skattaeftirlits voru skert árum saman á sama tíma og undanskotsleiðum var fjölgað. Hann vill ekki segja okkur frá samhenginu milli fjárframlaga bankanna til Sjálfstæðisflokksins með beinum og óbeinum hætti og hömluleysinu sem fjármálastofnunum var skammtað. Hann segir okkur ekki af hverju skattkerfinu var breytt hægt og rólega þannig að kúlulánaprinsar og prinsessur gátu skilið eftir sig hundruð milljóna skuldir í félögum eftir að hafa skafið eignirnar innanfrá úr félögunum. Umtalsverður fjöldi sjálfstæðismanna og menn nátengdir flokknum sleikja nú út um eins og kötturinn yfir rjómaskálinni. Og svo leyfir formaðurinn Bjarni sér að halda fram eftirfarandi: "Á Íslandi starfar ríkisstjórn sem gefur enga von." Hverjar eru vonir Sjálfstæðisflokksins.
Baráttan um Ísland hófst með ræðu Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, af því þessi "maður ársins 2007" sýndi á sér óvenju óheiðarlega hlið: "Er þetta að gerast vegna þess að við höfum ekki virkjað lýðræðið til lausnar á þessum vanda, að við höfum ekki hleypt nýju fólki, nýjum hugmyndum að á þinginu? Nei, það getur ekki verið ástæðan því að hér var kosið fyrir rúmu ári síðan og miklar breytingar urðu á skipan þingsins og ný ríkistjórn tók við." Þetta sagði Bjarni til að undirstrika enn frekar að fortíðin væri uppgerð og um hana ætti ekki að tala. Hvenær sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir af sér þingmennsku? Hvenær sagði Guðlaugur Þór Þórðarson af sér þingmennsku? Hvenær sagði Illugi Gunnarsson af sér þingmennsku? Hver var að tala um nýtt fólk, nýjar hugmyndir og nýjar lausnir? Málflutningur af þessu tagi er svo barnalegur að sautjándi maðurinn í þingflokki sjálfstæðismanna og sá sem er að reyna að reka sauðina í sama dilkinn, ritstjórinn, hlýtur að roðna bæði og blána.
Færa má fyrir því rök að VG og Samfylking hefðu átt að láta Sjálfstæðisflokkinn þrífa upp eftir sig óþrifnaðinn. Þetta kusu menn að gera ekki því ekkert benti til að flokkurinn hefði til þess afl og líkur bentu til að hér yrði óbyggilegt fyrir venjulegt fólk ef Sjálfstæðisflokkurinn yrði ekki hvíldur í tíu til fimmtán ár. Því hverjar eru vonir Sjálfstæðisflokksins? Er ekki Viðskiptaráðið farið að álykta eins og hér hafi ekkert orðið hrunið? Eru ekki Samtök atvinnurekenda á sama róli og 2005 til 2008? Eru ekki Samtök atvinnulífsins komin í sama gamla vinnugallann frá 2007? Og LÍÚ þarf ekki að tala um. Eru þetta ekki meginstoðirnar sem Sjálfstæðisflokkurinn hvílir á nú? Í ályktunum og samþykktum þessara samtaka felast "vonirnar" sem Sjálfstæðisflokkurinn býður upp á 2010. Og það er ömurlegt að heildarsamtök erfiðismanna, Alþýðusamband Íslands, skuli vera svo heillum horfið að ASÍ virðist vera orðin fimmta stoð falsvona Sjálfstæðisflokksins.
Halda menn að Sjálfstæðisflokkurinn sé tilbúinn til að breyta lánum almennings afturvirkt til lækkunar þótt Hæstiréttur hafi gert það upp á við fyrir "fjármálastöðugleikann" sem svo er nefndur án þess að lögmenn hafi áhyggjur af þessari skattheimtu eftir á?
Halda menn að Sjálfstæðisflokkurinn sé tilbúinn í að taka á bönkunum?
Halda menn að Sjálfstæðisflokkurinn sé tilbúinn í að gera upp við hugmyndafræði hinna ríku á kostnað efnaminni sem hagsmunafélög atvinnurekenda reka nú massívan áróður fyrir?
Af hverju er formaður Sjálfstæðisflokksins ekki spurður um þetta? Spurður um vonirnar sem hann er tilbúinn að gefa fátæku fólki. Skýringin gæti verið þessi: Morgunblaðinu stjórnar formaður Sjálfstæðisflokksins. Fréttablaðinu stjórnar sá sem gekk undir forsætis- og utanríkisráðherrunum 2002 til 2003. Pólitískur greinandi Fréttablaðsins er fyrrum formaður Sjálfstæðisflokksins og kynningastjóri íslensku útrásarinn í kóngsins Kaupinhafn. Og ríkisútvarpið? Það segir bara penar, sléttar, fréttir.
Nú þarft þú að spýta í lófana og fara óhefðbundar leiðir til að hjálpa þeim sem illa standa. Fella niður skuldir, þjóðnýta allar íbúðirnar sem standa tómar og búa til búsetakerfi sem tryggir fólki öruggt húsaskjól sem það vilja og snúa hjólum atvinnulífsins hraðar. Þetta ætti að vera ykkar fyrsta útspil í baráttunni um Ísland sem nú er hafin. Ef þið tapið þá hefjast þjóðflutningar frá Íslandi. Og svo þarf Samfylkingin að leggja frá sér móralinn sem hún hefur eftir stutta stjórnarsetu með íhaldinu því hún gat ekkert gert og hafði engin völd til að gera neitt í því kompaníi. Upp út hjólförunum saman.
Hafsteinn