EINN Á MÓTI ÞREMUR
Birtist í Frétablaðinu 02.08.13.
Formaður félags forstöðumanna ríkisstofnana, Magnús Guðmundsson, segir menn gera mýflugu úr úlfalda þegar óskapast sé yfir því að Kjararáð „leiðrétti" kjör fáeinna forstöðumanna sem áður hafi verið lækkaðir vegna hrunsins og eigi lögum samkvæmt að búa við áþekk laun og forstjórar á almennum markaði. Eflaust má líta þannig á málin og vissulega er það rétt hjá formanninum að hjá hinu opinbera þurfi „góða stjórnendur og öflugt vel menntað starfsfólk sem á skilið virðingu og hrós fyrir störf sín," einsog hann kemst ágætlega að orði í Fréttablaðsgrein.
Innra samhengi launakjaranna
En það á ekki aðeins við um stjórnendur heldur starfsfólk almennt, að það vilji láta sýna sér virðingu. Ég er ekki alveg viss um að fólk geri sér almennt grein fyrir því hve launin eru víða lág hjá hinu opinbera. Ég hygg að láglaunafólki þar finnist laun um eða yfir eina milljón á mánuði óeðlileg miðað við það sem því er boðið upp á. Allt er þetta spurning um innra samhengi.
Úlfaldahluti umræðunnar hefur einmitt stjórnast af hinu táknræna sem fram kemur með ákvörðun Kjararáðs. Alveg óháð lögmæti þeirrar ákvörðunar og þá einnig því hvort um „leiðréttingu" er að ræða, þá vekur hún upp umræðu um kjaramuninn í samfélaginu. Frjáls verslun og DV hafa á undanförnum dögum veitt okkur innsýn í forstjórakjörin á almennum vinnumarkaði. Enda þótt ríkisforstjórar séu varla hálfdrættingar á við fjármálamenn og forstjóra á almennum markaði, þá er það engu að síður staðreynd að hjá hinu opinbera er mjög margt fólk með tvö til fjögur hundruð þúsund krónur á mánuði og finnst sex faldur munur á eigin kjörum og forstöðumansins óeðlilegur.
Arður til eigenda en ekki til samfélags
Í þriðja lagi hefur þessi umræða beint athygli að því hvort innistæða sé fyrir launahækkunum almennt í komandi kjarasamningum. Þarna kann að vera erfitt að alhæfa. Í sumum atvinnugreinum eru miklir peningar. Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum hafði svigrúm til að greiða eigendum sínum eittþúsund og eitt hundrað milljón krónur í arð fyrir síðasta ár. Alla vega þar er svigrúm eftir að ríkisstjórnin ákvað að frekar skyldi greiddur arður til eigenda en að láta Landspítalann njóta sjávarauðlindarinnar.
Innistæða fyrir réttlæti
Þetta breytir því ekki að mörg fyrirtæki eru aðþrengd. Það á líka við um ríkið og flest sveitarfélög. Þar er innistæðan lítil. En alls staðar er þó til innistæða fyrir réttlæti. Það er alls staðar hægt að skipta á réttlátari máta en nú er gert. Hvernig væri að gera samkomulag um það í þjóðfélaginu að lægstu laun verði ekki lægri en þriðjungurinn af hæstu launum? Þessari hugmynd hefur margoft verið hreyft - m.a. af minni hálfu sem formaður BSRB nema hvað þá þótti mér einn á móti þremur heldur of mikið. Í síðustu ríkisstjórn orðaði ég einnig þessa hugmynd.
Einn á móti þremur launaformúlan hefði í för með sér réttlæti sem innistæða er fyrir. Myndi félag forstöðumanna ríkisstofnana styðja slíka hugmynd? Og hvað með SA, ASÍ, BSRB, BHM og KÍ?
(Við birtingu í Fréttablaðinu féllu flestar millifyrirsagnir niður)