Fara í efni

EKKI SUNDRA ORKUVEITU REYKJAVÍKUR!

Fréttabladid haus
Fréttabladid haus

Birtist í Fréttablaðinu 10.12.13.
Samkvæmt tilskipun Evrópusambandsins skal orkufyrirtækjum sundrað í einingar sem annast vinnslu, dreifingu og sölu á orku og jafnframt ber að aðskilja rækilega rekstur sem flokkast undir samkeppnisrekstur frá  starfsemi sem heyrir undir einkaleyfisrekstur. Þessi tilskipun var lögfest hér á landi í raforkulögum árið 2003 en síðan var  frestað að framfylgja tilskipuninni  gagnvart OR. Það var vegna fjárhagsstöðu OR en skuldastaðan var svo slæm að ekki þótti stætt á því að veikja fyrirtækið með þessum hætti.

Öðrum orkufyrirtækjum var hins vegar gert með lögunum að undirgangast tilskipunina  þótt nánast öllum sem að orkumálum koma þætti þetta hið mesta óráð og vera notendum í óhag. Í greinargerð með frumvarpi sem nú liggur fyrir Alþingi kveður því við gráan tón þegar sagt er að allt þetta sé gert til þess að „tryggja hagsmuni"  þeirra sem njóta eiga  þjónustu orkufyrirtækjanna. Veruleikinn er því miður annar því þetta er einvörðungu til að fullnægja kröfum ESB; kröfum sem við hefðum - og kunnum enn að geta fengið undanþágu frá.  Og taki menn eftir: Frestunin gagnvart OR var vegna þess að mönnum þótti ekki rétt við erfiðar aðstæður að veikja stofnunina með þessum kerfisbreytingum!

Nú á hins vegar að láta til skarar skríða gegn OR og ganga enn lengra, kljúfa stofnunina upp í sjálfstæð dótturfélög - og undirbúa þannig markaðs- og einkavæðingu þeirra. Í frumvarpinu er vísað í félögin sem sundra á Orkuveitunni í,  þ. e. þau sem  „stunda vinnslu, framleiðslu og sölu raforku og heits vatns og gufu og rekstur grunnkerfa, svo sem dreifiveitu rafmagns, hitaveitu, vatnsveitu, fráveitu og gagnaveitu, auk annarrar starfsemi sem hefur sambærilega stöðu."

Mikilvægt er að fresta enn um sinn þessari aðför að Orkuveitu Reykjavíkur og nota tímann til að taka allt regluverkið upp gagnvart orkugeiranum í heild sinni og leita heimildar ESB til undanþágu í því efni. Til þess eru ríkar forsendur. Eigendum OR svo og löggjafanum ber skylda til að gæta hagsmuna okkar sem borgum brúsann!