ENGAN ÞYKJUSTU-LEIK!
27.09.2011
" Einkabíllinn á ekki eftir að verða ódýrari í rekstri á komandi árum". Þetta er alröng staðhæfing hjá þér hér á síðunni. Það kostar ca. 12 þús. kall að keyra venjulegan bensínbíl til Akureyrar. Sambærilegur kostnaður fyrir nýjan rafbíl er 3000 krónur. Ég held að það sé auðveldara að lækka eldsneytisverð og gera þrjúhundruðþúsund manns í 100 þúsund ferkílómetra landi kleift að eiga einkabíl, heldur en að vera í almenningssamgangna þykjustuleik.
HreinnK