ERU FJÁRMÁLAMENN KOMNIR Í STJÓRNSÝSLUNA?
Sæll Ögmundur.
Ég hlustaði á morgunútvarpið í Ríkisútvarpinu fyrir helgi þar sem fjármálaráðherrann var spurður út í afstöðu sína til ágreinings innan ríkisstjórnarinnar um að ríkið byggi fangelsi (hugmynd Ögmundar) eða að einkaaðilar byggi það (hugmynd Jóhönnu). Mér fannst gaman að hlusta á Steingrím og jánkaði hverju orði eins og ég var vön að gera þegar Jón Baldvin talaði hér á árum áður. Það var þó eitthvað í viðtalinu sem sat í mér og eftir að hafa hlustað aftur á það á netinu eftir helgina (http://dagskra.ruv.is/ras2/4540619/2011/07/22/5/ ) verð ég að játa að áhyggjur mínar af ríkisfármálunum hafa aukist frá því sem áður var. Steingrímur lýsti vandanum með eftirfarandi hætti og þetta er nánast orðrétt eftir haft: Ríkið hefur einsett sér að ná niður hallarekstri. Ný framkvæmd sem ríkið fjármagnar við þau skilyrði mun annaðhvort kalla á meiri niðurskurð, meiri skattahækkanir eða meiri halla. Framkvæmd á vegum ríkisins við þessi skilyrði mun kalla á lántöku þar sem ríkið þarf að bera fjármagnskostnað af þeim lánum. Því þarf að leita lausna þar sem hinn brýni vandi ríkisfjármálanna væri ekki aukinn, ríkið myndi ekki sjálft leggja fram fé og bókfæra það í sínum fjárlögum. Nú deilir enginn um að ríkið mun greiða fyrir fangelsið að endingu óháð því hvort það er gert með langtímaleigu eða afborgunum af láni. Þessi fjármögnunarkostnaður sem Steingrímur vísaði til að myndi annars lenda á ríkinu mun lenda þar fyrir rest í gegnum langtímaleigusamning. Alls ekki ólíkt því sem myndi gerast með afborgunum af langtímaláni. En það sem olli mér óhug var frekar að það væri markmið að fegra bókhald ríkisins með því að gera samninga með ríkisábyrgð til áratuga og velja þann kost frekar vegna þess að þá lítur út fyrir að ríkið sé að ná árangri. Eru menn ekki bara að tala um bókhaldsfiff þar sem raunverulegar skuldbindingar og kostnaður við framkvæmdir virðast aukaatriði. Í þessum hugarheimi er efnahagsreikningurinn eitthvað sem á að sýna góða mynd og byggja upp trúverðugleika. Er þetta kannski afleiðing þess hvað það eru margir úr bönkunum komnir í stjórnsýsluna að þeir séu að matreiða svipaðar lausnir og bankarnir byggðu veldi sitt?
Sigurbjörg