FELLA STJÓRN?
25.05.2022
Flóttamenn hér fella stjórn
á fréttir agndofa góndi
Vinstri Græn vilja færa fórn
ekki Jón Blóðmerabóndi.
JÓN GUNNARSSON VAR ,,BLÓÐMERABÓNDI‘‘
Með blóðmerahaldi bætti sinn hag
og bráðlega fjármálin komust í lag
já ataður blóði
og mikill gróði
aumkunarverður þar kunni sitt fag.
,,ALLT TEKUR ENDA‘‘
Flokkinn minkar fljótt og hratt
og fylginu þar tapar
Á samstarfinu fer Katrín flatt
að feigðarósi hrapar.
,,KÆRI VINUR‘‘
Í Ameríku er Ömmi enn
er margt á hérna dynur
Kemur þú kannski senn
elsku kæri vinur.
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Svar: Nú liður að heimferð. Tvær vikur enn.
Ögmundur